Kópavogsbúar geta verið stolltir af Ýmisliðinu . Glæsilegur 3-1
sigur í gær móti GG frá GRindavík á gervigrasinu Fagralundi með
mörkum frá Eyþóri Helga
(tvö) og Hörður Árnason
bróðir Íbbsta sprengdi einu inn.
Lið Ýmis var þannig skipað:
Beitir Ólafsson - Bjarki Valberg(Jón Einar Hjaltested 65.),
Þröstur Friðberg (Gunnar Þjóðólfsson 46.), Damir Muminovic
(Sigurður Bjarni Markússon 73.), Sævar Davíðsson aka War (Indriði
Björn Þórðarson 57.), Guðni Már Kristinsson (Úlfar Freyr Jóhannsson
46.) - Unnar Andri Unnarsson , Bjarki Már Sigvaldason, Leifur Andri
Leifsson, Hörður Árnason (Ægir Már Gylfason 71.) - Eyþór Helgi
Birgisson.
Einsog glöggir taka eftir þá vantar nöfn Gísla Freys, Jónasar og
Bjögga þarna inn, lykilleikmenn í vörn miðju og sókn, en sigur engu
að síður staðreynd og Ýmismenn byrjaðir að setja standardinn fyrir
sumarið.
Beitir var víst óvenju heitur í markinu í þessum leik.
Í annað þá var blaðamaður íþróttablaðs Fréttablaðsins að spá HK
10 sæti í sumar og þar með falli með alls konar retarded rökum. M.a
var hann að gefa Gunna þjálfara 5 í einkunn, vörninni 4 og fullt af
öðrum furðulegum einkunnagjöfum og það ásamt skorti á
hæfileikaríkum leikmönnum væri grundvöllur þessara hávísindalegu
niðurstöðu að HK yrði falliðið í sumar.
Einkunnagjöf hans var á þessa leið
Þjálfari 5
Markvarsla 7
Vörn 4
Miðja 4
Sókn 5
Breidd 1
Liðsstyrkur 2
Heimavöllur 6
Áhorfendur 7
Hefð/reynsla 1
Þetta er glötuð einkunnagjöf, ekki af því að hún er lág á
flestum sviðum heldur þá er þetta einfaldlega leikur mannsins með
tölum. Td að gefa Gunna þjálfara sem er búinn að ná frábærum
árangri með liðinu 5 en áhorfendum 7 (ég er samt þakklátur)
sýnir svart á hvítu hvað þetta er mikið rugl.
Það er staðreynd að HK verður spútnik liðið í sumar, það er
engin pressa á HK einsog er á öllum hinum liðinum og ef HK nær
árangri, sem HK mun ná, verðum liðið sjálfkrafa spútnik liðið.
Enginn að tala um titla eða bikara, enda gerast góðir hlutir hægt
og menn í þessu einsog öllu verða að vera raunsæir. Gott og vel, en
ég heiti að nafni mínu að veði að HK verður ekki liðið sem fellur í
sumar heldur Breiðablik eða Víkingur og í fyrsta sæti verður FH og
í öðru verður Valur, ég hef gegnum tíðan reynst með sannspárri
mönnum í bransanum og því get ég lagt líkama minn og nafn að
veði.